Lagalegar upplýsingar
SonyC1505/C1504
Sony Mobile Communications AB eða dótturfyrirtæki þess í viðkomandi landi gefur út þessa handbók án
nokkurrar ábyrgðar. Sony Mobile Communications AB getur gert endurbætur og breytingar á þessari handbók
sem nauðsynlegar kunna að vera vegna prentvilla, ónákvæmni núverandi upplýsinga eða endurbóta á forritum
og/eða búnaði hvenær sem er. Slíkar breytingar verða þá gerðar á seinni útgáfum handbókarinnar.
©Sony Mobile Communications AB, 2012.
Allur réttur áskilinn.
Með símanum er hægt að hlaða niður, vista og framsenda viðbótarefni, t.d. hringitóna. Notkun slíks efnis kann
að vera takmörkuð eða bönnuð með réttindum þriðja aðila, þ.m.t. en ekki eingöngu vegna takmarkana
samkvæmt ákvæðum höfundarréttar. Þú, en ekki Sony, bera algera ábyrgð á því efni sem þú hleður niður í
farsímann eða framsendir úr honum. Áður en þú notar viðbótarefni skaltu ganga úr skugga um að ætluð not séu
í samræmi við leyfisskilmála eða heimiluð með öðrum hætti. Sony ábyrgjast ekki nákvæmni, samkvæmni eða
gæði utanaðkomandi efnis né annars efnis frá þriðja aðila. Undir engum kringumstæðum er Sony ábyrgt á
nokkurn hátt vegna misnotkunar þinnar á utanaðkomandi efni eða efni frá þriðja aðila.
Þessi notendahandbók kann að vísa til þjónustu eða forrita sem þriðju aðilar veita. Notkun á slíkum forritum eða
þjónustu kann að krefjast sérstakrar skráningar hjá þriðja aðila og kann að vera háð sérstökum
notkunarskilmálum. Vinsamlegast lestu fyrst notkunarskilmála og viðeigandi persónuverndarstefnu þeirra forrita
sem eru fengin á eða í gegnum vefsíðu þriðja aðila. Sony tryggir hvorki né ábyrgist framboð eða afköst
vefsvæða eða veittrar þjónustu þriðja aðila.
Fjarlægðu rafhlöðuna til að sjá lagalegar upplýsingar, eins og CE-merkið.
Öll vöru- og fyrirtækjaheiti sem nefnd eru hér eru vörumerki og skráð vörumerki viðkomandi eiganda. Allur réttur
sem ekki er veittur skýlaust í handbók þessari er áskilinn. Öll önnur vörumerki eru eign viðkomandi eigenda.
Farðu á
www.sonymobile.com fyrir frekari upplýsingar.
Myndir hafa það hlutverk að gefa notendum hugmynd um vöruna og ekki er víst að þær lýsi símanum
nákvæmlega.
Þessi vara er varin af tilteknum hugverkarétti Microsoft. Notkun eða dreifing á slíkri tækni utan vörunnar er
óheimil án leyfis Microsoft.
Eigendur efnis nota WMDRM-tækni (Windows Media stafræna réttindatækni) til að verja hugverkarétt sinn,
þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar WMDRM-hugbúnað til að fá aðgang að WMDRM-vörðu efni. Ef WMDRM-
hugbúnaður getur ekki varið efni kunna eigendur þess að fara fram á að Microsoft afturkalli getu hugbúnaðarins
til að nota WMDRM til að spila eða afrita varið efni. Afturköllun hefur ekki áhrif á óvarið efni. Þegar þú hleður
niður leyfum fyrir varið efni samþykkir þú að Microsoft geti sent afturköllunarlista með leyfunum. Eigendur efnis
kunna að biðja um að WMDRM verði uppfært svo hægt sé að opna efni þeirra. Ef uppfærslu er hafnað getur
verið að ekki sé hægt að opna efnið sem biður um uppfærsluna.
Þessi vara er skráð með MPEG-4 og AVC leyfum til einkanota, ekki í viðskiptalegum tilgangi, notanda til að (i)
kóða myndefni í samræmi við MPEG-4-staðalinn („MPEG-4 myndefni“) eða AVC-staðalinn („AVC-myndefni“)
og/eða (ii) afkóða MPEG-4 eða AVC myndefni sem hefur verið kóðað af notanda til einkanota, en ekki í
viðskiptalegum tilgangi, og/eða fékkst hjá aðila með leyfi frá MPEG LA til að dreifa MPEG-4 og AVC myndefni.
Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, þ.m.t. sem tengjast
auglýsingum, notkun innanhúss og notkun í viðskiptaskyni og leyfisveitingu, er hægt að fá frá MPEG LA, L.L.C.
Sjá http://www.mpegla.com. MPEG Layer-3 hljóðafkóðunartækni með leyfi frá Fraunhofer IIS og Thomson.
111
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.