Sony Xperia E - Myndir og myndskeið skoðaðar í albúmi

background image

Myndir og myndskeið skoðaðar í albúmi

Notaðu albúm til skoða myndir og spila myndskeið sem þú tókst með myndavél

símans eða til að skoða svipað efni sem þú hefur hlaðið niður eða afritað á

minniskortið. Þú getur bætt landmerki við myndir og myndskeið og skoðað þær síðan

á heimskortinu. Í albúmi getur þú líka skoðað myndir og myndskeið sem þú hefur

hlaðað upp á netþjónustu, til dæmis á Picasa™ vefalbúmi eða á Facebook™.

Þú getur einnig deilt uppáhaldsmyndum þínum og myndskeiðum úr albúminu með

vinum þínum með því að nota þráðlausa Bluetooth™ tengingu, í tölvupósti,

skilaboðum og mismunandi þjónustum á internetinu. Einnig geturðu gert einfaldar

breytingar á myndum og notað þær sem veggfóður eða tengiliðamyndir. Nánari

upplýsingar Síminn tengdur við tölvu á síðu 89.

Yfirlit yfir albúmsflipa

Eftirfarandi flipar eru til staðar í albúm:

Myndir

– skoðaðu allar myndir og myndskeið sem eru vistaðar á minniskortinu.

Kort

– skoðaðu landmerktar myndir og myndskeiðsbúta á heimskortinu.

Á netinu

– skoðaðu möppu á netinu.

Albúm opnuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Albúm.

Ef stefna skjásins breytist ekki sjálfkrafa þegar þú snýrð símanum á hlið merkirðu við gátreitinn

Snúa skjá sjálfkrafa í Stillingar > Skjár.