Sony Xperia E - Minni

background image

Minni

Hægt er að vista efni á minniskorti, í innri geymslu símans og í minni símans. Tónlist,

myndskeið og myndir eru vistuð í innri geymslunni eða á minniskorti en forrit, tengiliðir

og skilaboð í minni símans.

Hægt er að flytja sum forrit úr minni símans yfir í innri geymslu.

Til að færa forrit yfir á innri geymslu símans

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Forrit.

3

Veldu forritið sem þú vilt færa yfir á innri geymsluna.

4

Bankaðu á Færa í innri geymslu.

Sum forrit er ekki hægt að flytja úr minni símans yfir á innri geymsluna.

Minniskort

Hugsanlega þarftu að kaupa minniskort sérstaklega.

Síminn þinn styður microSD™ minniskort sem er notað fyrir fjölmiðlaefni. Einnig er

hægt að nota þessa kortagerð sem laust minniskort með öðrum samhæfum tækjum.

Minniskortið forsniðið

Þú getur forsniðið minniskortið í símanum, til dæmis til að losa um minni. Þetta þýðir

að þú eyðir öllum gögnum á kortinu.

Allt efnið á minniskortinu verður eytt þegar þú forsníðir það. Tryggðu að gera öryggisafrit af öllu

sem þú vilt vista áður en minniskortið er forsniðið. Til að búa til öryggisafrit af efninu, getur þú

afritað það á tölvuna. Bent er á frekari upplýsingar í kafla

Síminn tengdur við tölvu

á síðu 89.

Til að forsníða minniskortið

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Geymsla > Aftengja SD-kort.

3

Þegar þú hefur tekið minniskortið úr pikkarðu á Eyða SD-korti.

30

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.