Upplýsingum um staðsetningu bætt við myndir
Kveiktu á landmerkingu til að bæta grófri staðsetningu (landmerki) við myndir þegar þú
tekur þær. Landfræðileg staðsetning er ákvörðuð annað hvort eftir þráðlausu kerfi
(farsíma eða Wi-Fi®) eða með GPS-tækni.
Þegar birtist á skjá myndavélarinnar er kveikt á landmerkingu en staðsetning hefur
ekki fundist. Þegar birtist er kveikt á landmerkingu og staðsetning er þekkt, þannig
að hægt er að landmerkja myndina. Slökkt er á landmerkingu ef hvorugt táknið sést.
65
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Kveikt á landmerkingu
1
Kveiktu á myndavélinni.
2
Ef myndavélin er ekki valin skaltu draga að .
3
Ýttu á og pikkaðu svo á Hnitamerking > Kveikt.
4
Pikkaðu á Í lagi til að samþykkja að gera GPS og/eða þráðlaus net virk.
5
Merktu valkostinn sem þú vilt velja í Staðsetningarþjónusta.
6
Þegar þú hefur staðfest stillingarnar skaltu ýta á til að snúa aftur á
myndavélarskjáinn.
7
Ef birtist í myndavélarglugganum er staðsetning þín fundin og hægt er að
landmerkja myndina. Ef ekki, farðu yfir GPS og/eða þráðlausa nettengingu.