Hvað er Android™?
Xperia snjallsími þinn frá Sony keyrir Android stýrikerfi. Android síminn getur gert
flesta valkosti eins og tölvan og þú getur aðlagað hann að þörfum þínum. Til dæmis,
getur þú bætt við eða eytt forritum, eða breytt forritum sem fyrir eru til að bæta
virknina. Á Google Play™ getur þú sótt fjölda forrita og leikja frá stöðugt stækkandi
safni. Einnig getur þú samnýtt forrit á Android™ símanum við öðrum forritum og við
þjónustur sem þú notar á netinu. Til dæmis getur þú tekið öryggisafrit af tengiliðum
símans, opnað mismunandi pósthólf og dagbækur frá einum stað, haft yfirsýn og
tengst netsamfélögum.
Android™ símar eru í stöðugri þróun. Þegar nýr hugbúnaður er í boði og síminn styður
þennan nýja hugbúnað getur þú uppfært símann til að sækja nýja eiginleika og nýjustu
betrumbætur.
Android™ síminn er með Google™ þjónustur uppsettar. Til að ná því mesta frá Google™
þjónustum sem fylgja ættir þú að hafa Google™ reikning og skrá þig inn á hann þegar þú
ræsir símann þinn í fyrsta skipti. Internetaðgangur er einnig forsenda notkunar margra
eiginleika í Android™.
Það getur verið að nýútkominn hugbúnaður sé ekki samþýðanlegur öllum símum.