Sony Xperia E - Símafundir

background image

Símafundir

Með símafundi eða fundarsamtali er hægt að ræða samtímis við fleiri en einn.

Til að halda símafund

1

Meðan á símtali stendur bankarðu á .

2

Sláðu inn símanúmer hins þátttakandans og bankaðu á .

3

Ef hinn þátttakandinn svarar er fyrsta símtalið sett í bið.

4

Bankaðu á .

Endurtaktu skref 1 til 4 til að bæta við fleiri þátttakendum.

Einkasamtal við einn þátttakanda í símafundi

1

Meðan á símtali stendur pikkarðu á Vinna með.

2

Pikkaðu á nafn þátttakandans sem þú ætlar að ræða einslega við.

3

Til að ljúka einkasamtali og snúa aftur í símafundinn pikkarðu á .

Þátttakanda sleppt úr símafundi

1

Þegar símafundur er í gangi pikkarðu á hnappinn sem sýnir fjölda þátttakenda.

Pikkaðu til dæmis á 3 þátttakendur ef þrír þátttakendur eru á fundinum.

2

Pikkaðu á við hlið þátttakandans sem þú vilt sleppa.

39

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að ljúka símafundi

Meðan símtalið er í gangi bankarðu á .