
Samstilltu fyrirtækjatölvupóst, dagbók og tengiliði
Opnaðu fyrirtækjatölvupóstsskeyti, dagbókarstefnumót og tengiliði beint úr símanum
þínum. Skoðaðu og vinndu með þau eins auðveldlega og úr tölvunni þinni. Eftir
uppsetningu, getur þú fundið upplýsingar í Tölvupóstur, Dagbók og Tengiliðir
forritunum.
Svo að þú fáir aðgang að valkostum sem lýst er hér að ofan, verða fyrirtækjaupplýsingarnar að
vera geymdar á Microsoft® Exchange netþjóni.
Til að setja upp vinnupósthólf, -dagbók og -tengiliði í símanum
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Pikkaðu á Stillingar > Pósthólf og samstilling.
3
Gakktu úr skugga um að kveikt sá á samstillingu svo að gögn þín verði samstillt
sjálfkrafa í samræmi við samstillingarbilið sem þú velur.
4
Pikkaðu á Bæta við reikningi > Fyrirtæki.
5
Sláðu inn fyrirtækisnetfangið þitt og lykilorð.
6
Pikkaðu á Næsta. Síminn byrjar að sækja upplýsingar um pósthólfið. Ef ferlið
rofnar skaltu hafa samband við kerfisstjóra fyrirtækisins varðandi frekari
upplýsingar, s.s. lénsheiti og slóð Exchange-þjóns.
7
Pikkaðu á Í LAGI til að leyfa netþjóni fyrirtækisins að stjórna símanum.
8
Veldu hvaða gögn þú vilt samstilla við símann, s.s. tengiliði og dagbókarfærslur.
9
Ef þú vilt geturðu gert tækisstjórnun virka til að gera fyrirtækisþjóninum kleift að
stjórna tilteknum öryggiseiginleikum símans. Til dæmis geturðu leyft
fyrirtækisþjóninum að stilla lykilorðareglur og stilla dulkóðun geymslu.
10
Þegar uppsetningu er lokið geturðu slegið inn heiti fyrir fyrirtækisreikninginn svo
auðveldara sé að bera kennsl á hann.
Til að breyta uppsetningu á vinnutölvupósti, dagbók og tengiliðum
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Pikkaðu á Stillingar > Pósthólf og samstilling og veldu pósthólf fyrirtækisins.
3
Pikkaðu á Pósthólfsstillingar og pikkaðu svo á vinnupósthólfið sem þú vilt
breyta.
4
Breyttu viðeigandi stillingum.
Til að stilla samstillingarmillibil fyrir vinnupósthólf
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Pikkaðu á Stillingar > Pósthólf og samstilling og veldu vinnupósthólfið.
3
Pikkaðu á Pósthólfsstillingar og pikkaðu svo á vinnupósthólfið sem þú vilt stilla
samstillingartímabil fyrir.
4
Pikkaðu á Tíðni tölvupóstkönnunar og veldu millibilsvalkost.
Til að fjarlægja vinnureikning úr símanum
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Pikkaðu á Stillingar > Pósthólf og samstilling, pikkaðu síðan á vinnureikning.
3
Ýttu á og pikkaðu svo á Fjarlægja reikning.
4
Pikkaðu aftur á Fjarlægja reikning til að staðfesta.