Sony Xperia E - Þráðlaus Bluetooth™‎ tækni

background image

Þráðlaus Bluetooth™ tækni

Notaðu Bluetooth™ valkostinn til að senda skrár yfir í önnur tæki sem eru samhliða

Bluetooth™, eða til að tengjast við handfrjálsan aukabúnað. Kveiktu á Bluetooth™

valkostinum í símanum og búðu til þráðlausa tengingu við önnur tæki sem eru

samhliða við Bluetooth™ til dæmis tölvur, handfrjálsan aukabúnað og síma.

Bluetooth™ tengingar vinna betur innan 10 metra (33 feta) færi, með enga massífa

hluti á milli. Í sumum tilvikum þarftu að para símann við önnur Bluetooth™ tæki.

Mundu að stilla símann í „uppgötvun“ ef þú vilt að önnur Bluetooth™ tæki greini hann.

Samvirkni og samhæfni milli Bluetooth™ tækja getur verið breytilegur.

Til að kveikja á Bluetooth™ og gera símann sýnilegan

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar.

3

Pikkaðu á 〇 við hliðina á Bluetooth svo 〇 breytist í |. birtist á stöðustikunni.

4

Pikkaðu á Bluetooth.

5

Pikkaðu á Ekki sýnilegt öðrum Bluetooth-tækjum.

87

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að stilla tímalengd á sýnileika símans gagnvart öðrum Bluetooth™ tækjum

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Bluetooth.

3

Ýttu á og veldu Fyrning sýnileika.

4

Veldu valkost.

Gefa símanum nafn

Þú getur gefið símanum nafn. Þetta nafn er sýnt öðrum tækjum eftir að þú hefur kveikt

á Bluetooth™ valkostinum og síminn þinn er stilltur á sjáanlegur.

Til að gefa símanum nafn

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth™.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Bluetooth.

4

Ýttu á og veldu Endurnefna síma.

5

Sláðu inn nafn á símanum.

6

Pikkaðu á Endurnefna.

Pörun við annað Bluetooth™ tæki

Þegar þú parar símann við annað tæki geturðu t.d. tengt símann við handfrjálsan

Bluetooth™ búnað eða Bluetooth™ bílasett og notað þau tæki til að hringja og svara

símtölum.
Þegar þú hefur parað símann við Bluetooth™ tæki mun síminn muna þessa pörun.

Þegar þú parar símann við Bluetooth™ tæki þarftu kannski að slá inn aðgangskóða.

Síminn mun sjálfvirkt reyna almenna aðgangskóðann 0000. Ef hann virkar ekki skaltu

leita að aðgangskóða fyrir tækið í fylgiskjölum Bluetooth™ tækisins. Þú þarft ekki að

slá aðgangskóðann inn aftur næst þegar þú parar símann við Bluetooth™ tæki.
Sum Bluetooth™ tæki, t.d. flest Bluetooth™ höfuðtól, krefjast þess að þú bæði parir og

tengir við önnur tæki.
Þú getur parað símann við nokkur Bluetooth™ tæki, en þú getur aðeins tengt við eitt

Bluetooth™ snið hverju sinni.

Til að para símann við annað Bluetooth™ tæki

1

Gakktu úr skugga um að tækið sem þú vilt para símann þinn við sé með kveikt

á Bluetooth™ og að það sé sýnilegt öðrum Bluetooth™ tækjum.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Bluetooth. Öll Bluetooth™ tæki sem eru til

staðar birtast á lista.

4

Pikkaðu á Bluetooth™ tækið sem þú vilt para við símann.

5

Sláðu inn aðgangskóða, ef beðið er um það. Síminn og Bluetooth™ tækið eru

nú pöruð.

Til að tengja símann við annað Bluetooth™ tæki

1

Ef þú ert að tengjast Bluetooth tæki sem krefst þess að þú parir símann þinn við

tækið fyrir tengingu skaltu fylgja viðeigandi skrefum til að para símann við tækið.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Bluetooth.

4

Pikkaðu á Bluetooth™ tækið sem þú vilt tengja við símann.

Til að hætta pörun við Bluetooth™ tæki

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Bluetooth.

3

Undir Pöruð tæki pikkarðu á við hliðina á heiti tækisins sem þú vilt hætta að

para við.

4

Pikkaðu á Afpara.

88

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Sendu og fáðu hluti með því að nota Bluetooth™ tæknina

Deila hlutum með öðrum Bluetooth™ samþýðanlegum tækjum eins og símum og

tölvum. Hægt er að senda og fá mismunandi tegundir hluta með því að nota

Bluetooth™ atriðið, eins og:

Myndir og myndskeið

Tónlist og aðrar hljóðskrár

Tengiliðir

Vefsíður

Til að senda atriði með Bluetooth™

1

Móttökutæki:

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth™ valkostinum og

að tækið sé sýnilegt öðrum Bluetooth™ tækjum.

2

Senda tæki:

Opnaðu forritið sem inniheldur hlutinn sem þú vilt senda og flettu

að hlutnum.

3

Eftir því um hvaða forrit og atriði ræðir gætirðu til dæmis þurft að styðja á atriðið,

opna atriðið eða ýta á . Aðrar leiðir til að senda hlut geta verið til staðar.

4

Veldu Deila eða Senda.

5

Veldu Bluetooth.

6

Kveiktu á Bluetooth™ ef um það er beðið.

7

Pikkaðu á heiti viðtökutækisins.

8

Móttökutæki:

Samþykktu tenginguna, ef spurt er um það.

9

Senda tæki:

Staðfestu flutninginn í mótökutækið ef beðið er um það.

10

Móttökutæki:

Samþykktu komandi hlut.

Hlutir fengnir með Bluetooth™

1

Gakktu úr skugga um að kveikt sé á Bluetooth™ valkostinum og hann sé

sýnilegur öðrum Bluetooth™ tækjum.

2

Senditækið byrjar nú að senda gögn yfir í símann þinn.

3

Sláðu inn sama aðgangskóða á báðum tækjum eða staðfestu leiðbeinandi

aðgangskóða, ef beðið er um það.

4

Þegar þér er tilkynnt um komandi skrá í símann, dragðu stöðustikuna niður og

pikkaðu á tilkynninguna til að samþykkja skráarflutning.

5

Pikkaðu á Samþykkja til að ræsa skráarflutning.

6

Til að skoða framvindu flutningsins, dragðu stöðustikann niður.

7

Dragðu stöðustikann niður og pikkaðu á viðeigandi tilkynningu til að opna

fenginn hlut.

Til að skoða skrár sem mótteknar hafa verið með Bluetooth™

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á Stillingar > Bluetooth.

3

Ýttu á og veldu Sýna mótteknar skrár.